Friday, April 18, 2008

Rapport á vikunni

Fyrsta vinnuvikan er búin og ég er alveg útkeyrð þó ég hafi nú ekki þurft að gera mikið. Það er margt sem þarf að lærast og margt að hugsa um. Á þriðjudag og miðvikudag heimsótti ég og lærði af sitt hvorri dagmömmunni og voru þær eins og dagur og nótt. Ein var mjög róleg og ömmuleg og var ekkert að stressa sig við að fara út með börnin í göngutúr nema þegar hún og börnin nenntu. Þau fóru oftast bara út í garð á meðan hin fór með börnin í göngutúr á hverjum einasta degi, nema hugsanlega þegar það er helli demba. Öll börnin voru hávær og hún líka, þannig að ég var með dúndrandi hausverk þegar ég fór þaðan. Hún var samt mjög hress og skemmtileg kona og mjög góð með börn. Í gær hitti ég síðan móður fyrsta barnsins sem ég fæ, en þau eru með mér í mæðrahóp. Barnið verður nú oftast bara í hálfan dag, þannig að þetta verður nú bara róleg byrjun, alla vega þangað til ég fæ hin tvö systkinin. Þau byrja nú ekki fyrr en 5. maí, þannig að ég fæ smá tíma til að aðlagast sem er nú bara í alla staði frábært.

Ég fann það samt á þessum fundi og bara í vikunni allri að það er dáltill munur á hugsunarhætti Dana og Íslendinga. Eða... alla vega milli mín og þeirra. Mér finnst oft eins og annað fólk taki sjálft sig svo alvarlega og átta mig ekki alltaf á því hvernig það hugsar, en... enn eitt sem maður þarf að aðlagast. Ég er alla vega fegin því að það hafi verið frí í dag. Það er bænadagur svokallaður sem er frídagur hér í Danmerku. Það var sól og blíða, þannig að við vorum dáltið mikið úti í dag. Gaman að sjá hvað Gunnar Jakob hefur gaman af því að vera úti.

Kiddi er alltaf að vinna í húsvagninum okkar og miðar honum vel, þannig að hver veit. Kannski fáum við að eyað svolitlum tíma í honum í sumar. Hann mun sennilega standa niður við strönd á kampingsvæði síðla sumars og yfir veturinn, þannig að þetta verður eins konar sumarbústaður fyrir okkur. Við fengum okkur kaffi í honum í dag, en hann stendur þar sem Kjartan býr þar sem það er ólöglegt fyrir okkur að hafa hann hjá okkur. Hann er hvort eð er of stór, þannig að hann kemst ekki fyrir, en þetta verður allt í lagi svona.

Var að uppfæra síðuna hans Gunnars Jakobs og setja inn nokkrar myndir fyrir ykkur sem fylgist með því. Þangað til næst.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home