Monday, April 14, 2008

Fyrsti vinnudagur

Þá er fyrsti vinnudagurinn búinn og var hann nú ekki mjög erfiður. Ég var á skrifstofunni og baust við að þurfa að dúsa þar allan daginn, en það eina sem ég þurfti að gera var að sitja á kynningarfundi fyrir mig og eina aðra verðandi dagmömmu. Við vorum báðar með börnin okkar, en vegna skorts á dagmömmum fengu þeir ekki að fara í gestapössun. Það var svo sem ekki þörf á því miðað við að ég var búin kl. 11.

Annars er Guð góður aftur, en ég fékk einmitt þann vinnutíma sem hentar mér best. Ég hélt að ég myndi þurfa að vinna frá 7-16:45 a.þ.a það vinna flestar dagmömmur í mínu hverfi á þeim tíma, en ég fæ að vinna frá 6:30-16:15 og 15:30 á föstudögum a.þ.a það hentar best foreldrum tveggja systkyna sem ég mun passa. Þetta þýðir að dagurinn er ekki búinn þegar ég er loksins búin að vinna. Mér finnst nú ekkert mál að byrja svona snemma þar sem GJ vaknar alltaf kl. 6 hvort eð er. Á þennan hátt nýtist ss. tíminn best. Okkur var að vísu hótað að vinnutíminn myndi breytast milli vikna, en ég vona ekki... það getur samt gerst þegar ég fer að fá gestabörn.

Ég fæ fullt af dóti (leikföng, risa vagn, stóla o.fl.)sent til mín á morgun þannig að þá fer allt að líta aðeins dagmömmulegra út.

Við eigum annars húsvagn sem er bara frekar geggjað. Hann er að vísu slasaður, en það var líka þannig sem við fengum hann á hlægilegu verði. Kiddi er þegar kominn langt með að vinna í honum, þannig að hann verður sennilega tilbúinn í sumar. Man, við ætlum sko að ferðast mikið á honum. Þetta er sko alveg geggjaður vagn. Tengdó ætla samt að eiga helminginn, en tengdapabba hefur dreymt um að eignast húsvagn í langan tíma. Á þann hátt fær hann sitt privacy þau skipti sem þau eru í heimsókn hér. Það getur verið þreytandi að þurfa alltaf að búa inn á öðrum. Ég og hann eigum margt sameiginlegt hvað þá skoðun varðar. Enda á ég ferlega erfitt með að búa með öðrum, sem er skrýtið miðað við að ég var í heimavistarskóla í 6 ár. Kannski er það einmitt þess vegna. Komin með nóg for life... Sjáum til. Er að reyna að vinna í þessu. Þetta er samt einn af mínum stærstu veikleikum í lífinu, sem er ekki skemmtilegt þar sem við erum einmitt í þeim aðstæðum að þurfa að gera þetta oftar en ef við byggjum á Íslandi. Hm!

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hæ mín kæra! Gaman að heyra að allt virðist ætla að ganga vel. Mjög spennandi tímar framundan hjá ykkur. Allt gengur rosa vel hjá okkur, erum orðin rosa spennt. Styttist líka í sumarið og vonandi Eþíópíuferðina :)

Bið að heilsa, Guðrún Birna

15 April, 2008 02:04  
Blogger Kristín Bjarnadóttir said...

Sæl Ólöf Inger
Takk fyrir kveðju og myndina sem þú sendir af Gunnari Jakobi. Fyrirgefðu hvað ég er léleg að skrifa þér en mig langaði bara að segja þér að ég les allaf bloggið og finnst það mjög gaman! Takk fyrir það. Vona að dagmömmustarfið gangi vel. Guð veri með þér og ykkur öllum. Kveðja Kristín Bjarnadóttir

15 April, 2008 04:12  

Post a Comment

<< Home