Wednesday, May 07, 2008

Þá er verkfallinu lokið og konan farin að vinna aftur. Ég mun eiga fund á morgun við foreldra barnsins sem ég fæ næst. Það verður spennandi að sjá hvernig það gengur að hafa þriðja barnið. Gunnar Jakob og hinn strákurinn eru orðnir vanir hvorum öðrum og gekk betur í dag en ég átti von á.

Það er allt í blóma hér og sumarið alveg komið. Það voru 23 gráður í gær og eru 21 núna. Því miður fylgir því bíflugur og vespur og finnst mér alveg nóg um. Ég þori varla að fara með börnin út á verönd þar sem þær sækjast alveg í sólstofuna okkar. Við þurfum eitthvað að finna út úr þessu.

Við fórum niðrí bæ í gær þar sem ég var alveg komin með nóg af því að hanga alltaf heima. Stundum nennir maður bara ekki að gera heimilisverkin enn einu sinni! Við keyptum föt á Kidda og Gunnar Jakob, enda var nú alveg kominn tími á það, sérstaklega hvað varðar Kidda. Við höfum lítið þurft að kaupa föt á GJ þar sem hann fékk svo margar gjafir bæði þegar hann fæddist og þegar hann varð blessaður. Þó það hafi allt verið mjög fín föt þá er nú gaman að fá að velja aðeins hvað barnið manns á til að fara í :)
Ég endaði á því að kaupa mér þessi svaka flottu sólgleraugu, enda er ég voðalega viðkvæm fyrir of mikilli birtu. Veit nú ekki af hverju það er. Kannski eru það allir. Ég hef samt eiginlega aldrei átt sólgleraugu, og þau sem ég hef átt hafa bara ekki farið mér, enda ódýrt drasl (afsakið hégómann). Sagan byrjar samt þannig að GJ tóks loksins að eyðileggja gleraugun eftir margar tilraunir. Kiddi límdi þau saman með einhverju lími og þegar við vorum í gleraugnaversluninni ákváðum við að það væri sniðugt fyrir mig að ganga með linsur þar sem ég mun náttúrlega passa fleiri börn í vinnunni. Og þar sem ég hafði ætlað að eignast sólgleraugu með styrk, þá myndi það ekki vera sniðugt þar sem að það er óþarfi með linsur. (Voðalega þarf ég alltaf að útskýra allt í smáatriðum!)

Við fórum líka á kristilegt fjölskyldumót um síðustu helgi. Það var haldið á stað sem er í um 2klst fjarlægð héðan og heitir Himmerlandsgaarden og er í eigu Aðventista. Staðurinn er notaður undir sumarbúðir og alls konar mót, ss. skátamót, fjölskyldumót o.fl. auk þess sem það er leigt út. Bara svipað og sumarbúðirnar á Íslandi. Við gistum samt í sumarbústað sem við leigðum, en það var nýbúið að gera hann upp, þannig að hann var mjög flottur að innan. Þar var sauna og jacoozie í baðherberginu og flottar innréttingar. Þau voru nú ekki búin utandyra, þannig að þar var nú bara sandur og mold. En það gerði nú ekkert til þar sem við reyndum að eyða sem mestum tíma á mótssvæðinu. Það er alltaf aðeins erfiðara með barn. Annars var þetta ágætis mót. Það var gott sem ég náði að hlusta á, en annars var gaman að hitta fólk sem maður þekkti.

Jæja, ætla að fá mér meira te áður en strákarnir vakna.
Bless í bili.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gaman að heyra hvað allt gengur vel! Þú ert ótrúlega dugleg. Komið þið eitthvað heim í sumar?

Kv, Guðrún Birna

07 May, 2008 06:13  
Anonymous Anonymous said...

Hæhæ Ólöf mín!
Fylgist alltaf reglulega með þér, þó ég sé nú ekki dugleg að kvitta!!
Gaman að heyra að dagmömmustarfið gangi vel.
og svo spyr ég eins og Guðrún... Komið þið eitthvað heim í sumar??
Kveðja, Jóhanna ;)

07 May, 2008 08:04  
Blogger Ólöf Inger said...

Því miður þá komum við ekki. Foreldrar okkar beggja koma til okkar sitt hvora vikuna, þannig að við ákváðum að það væri best að reyna bara að koma næstu jól. Það er aðeins of dýrt að fljúga bæði í sumar og um jólin. Hefði samt verið gaman.

08 May, 2008 03:56  

Post a Comment

<< Home