Friday, May 16, 2008

Jæja, nú er ekki víst að ég komi heim eftir allt saman (það voru of fáir sem kommenteruðu...!! Nei, nei, smá grín). Miðinn sem var á tilboði er ekki á tilboði lengur vegna of langs umhugsunartíma (maður þarf alltaf að miða við annað fólk og hvernig hitt og þetta passar fyrir það). Svona er nú það. Þetta hefði verið gaman, en við ætlum þá bara að njóta þess að fá fólk í heimsókn og vera í fríi. Þetta hefði svo sem orðið frekar mikið stress. Það gæti líka verið að við keyrum til útlanda með foreldrum okkar, þannig að ég mun mjög sennilega fara til útlanda hvort eð er.

Annars er ég í algjörum sumar fílíng þessa dagana, enda er maður bara á hlírabolnum og stuttbuxum hér alla daga. Það er eitthvað við það að búa í húsi sem er með að hluta til yfirbyggða verönd og garð sem er næstum í fullum blóma og hita um og yfir 20 gráður á hverjum degi sem gerir að manni líður eins og maður sé á leiðinni niðrá strönd. Það er svo langt síðan ég hef búið í landi þar sem það er eðlilegt að það sé heitt úti. Yfirleitt fer maður til túristalanda til að upplifa sólina og þá er yfirleitt strönd nálægt. Að vísu er ströndin ekki langt frá, við eigum bara eftir að fara þangað. Kannski notum við hvíldardaginn til þess og sólum okkur svolítið og tökum með okkur piknikk körfu (sem ég þarf að muna eftir að kaupa by the way. Best að skrifa það niður á listann). Til hvers eiginlega að fara til Íslands þegar maður býr við svona góð kjör, ég bara spyr?! Ok, fólkið er svo sem líka mikilvægt :)

Jæja, nóg af þessu röfli.

Var annars að missa þriðja barnið sem ég var með í gæslu. Það hafði enga leikfélaga á sínum aldri. Svona er nú það. Á meðan er ég alltaf bara með 2 börn, mitt og annað sem ég passa yfirleitt bara hálfan daginn. Frekar mikill lúxus hér á ferð. Fæ samt næsta barn 1.júní, þannig að það verður nú ekki alltaf svona. Guð er bara einstaklega góður við mig og gefur mér sérstaklega langan aðlögunartíma :) Hann veit ég þarf á því að halda.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jæja, leiðinlegt að þið komið ekki, en við hittumst þá bara seinna.
Ekkert smá flottur strákurinn þinn á myndinni hérna að ofan. á alveg eftir að kíkja betur á BL.
Vona að þú hafir það bara extra gott í góða veðrinu og hugsir bara fallega til okkar í gráa litlausa veðrinu sem er í dag!
Kveðja, Jóhanna og co

27 May, 2008 02:56  

Post a Comment

<< Home