Keflavík-Köbenhavn
Nú fer karlinn bráðum að koma heim eftir viku leynilegt ferðalag til Íslands. Hrikalega er leiðinlegt og erfitt að vera frá hvort öðru í svona langan tíma. Já, ákváðum bara að koma fjölskyldunni á óvart. Tilefnið var bíllinn okkar, en það kostar morðfjár að flytja inn bíl hingað til Danmerkur þannig að við ákváðum bara að flytja hann aftur heim og vonumst nú til að hann seljist. Ef einhvern vantar rauðan Volvo, þá er þetta hinn fullkomni fjölskyldu-/flutningabíll. Ég sé nú bara frekar mikið eftir honum.
Já, við komumst ss. að því að væri ódýrast fyrir okkur að senda bílinn heim um síðustu helgi eða þessa, en þar sem erfinginn er að verða eins árs um þessar mundir, þá varð síðasta helgin fyrir valinu. Við pöntuðum því farið á miðvikudegi og svo fór Kiddi á laugardeginum. Hann fór með Smyrilline, en það kom í ljós að það var í raun ódýrara fyrir hann að fara með skipinu og fljúga síðan heim en að senda bara sjálfan bílinn. Svo vildi svo til að Pétur pabbi hans átti 55 ára afmæli í gær, þannig að það var gaman fyrir þá báða að hann skyldi vera þar. Ferðalagið tók 3 sólarhringa, þannig að hann náði nú bara 2,5 sólarhringum í faðmi fjölskyldunnar, en þetta var nú vonandi gaman samt, þó ferðalagið hafi verið minna skemmtilegt. Það er víst ekki upp á marga fiska að sigla með Smyrilline. Ekki mikið í boði þar, og þá sérstaklega leiðinlegt fyrir þá sem ferðast einir. Þá vitið þið það.
Já, Gunnar Jakob verður eins árs þann 1. júní og verður haldið upp á það bæði á laugardeginum og sunnudeginu, hvorki meira né minna. Mæðrahópurinn heldur nefnilega sameiginlega afmælisveislu á sunnudeginum, og ákváðum við því að bjóða öðrum vinum og fjölskyldu á laugardeginum. Nú vona ég bara að blíðan haldist og að vindinum lægi. Það er búið að vera ferlega hvasst undanfarna daga, þó það hafi verið heitt. Nú vonast ég bara til að sýkingin í augunum mínum sé farin, þannig að ég geti loksins fengið þessar blessaðar linsur sem ég hef verið að reyna að fá í nokkrar vikur núna. Þá get ég líka loksins notað þessi líka fínu sólgleraugu sem ég keypti dýrum dómum. Þessi hégómi er alveg að fara með mig! Ég fer bráðum að gefast upp á honum :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home