Wednesday, June 18, 2008

...

Er með 3 börn þessa vikuna. Gengur vonum framar. Smá spenningur og óöryggi hjá börnunum og mér fyrst, en það gengur pott þétt best þegar enginn annar er til staðar (svo sem gestir og annað búandi fólk...), þá er meiri ró yfir krílunum. Fer í heimsókn til annarrar dagmömmu með börnin á morgun. Gaman, gaman. Annars er lífið bara upp og niður. Þreytan segir stundum til sín og manni finnst vinnan aldrei búin, sérstaklega þegar maðurinn er í próflestri og getur ekki tekið við barninu eftir vinnudaginn. Svona er nú það. Þetta hljómar nú aðeins dapurlegra en það er í raun. Jóhann, bróðir Kidda, og Siggi vinur hans eru í heimsókn hjá okkur frá og með í gær og verða í allt sumar. Svo nú er bara að sjá hvernig Ólöfu gengur að höndla það. Mun gera mitt allra besta. Hef samt allt í einu mikla þörf til að fara í göngutúra á kvöldin. Ég er farin að halda að ég þjáist af einhverfu eða eitthvað álíka. Hm!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home