Hitt og þetta um hitt og þetta
Barnið er búið að vera lasið og slappt síðan sl. sunnudag, en hann er að fá nokkurn veginn allar tennurnar sem hann á eftir að fá í einu greyið. Alla vega 8 tennur í einu. Þetta leiðir til að hann hefur verið með hita í 4 daga og ekki getað borðað næstum neitt vegna sársauka í viku. Algjörlega úrvinda greyið, enda svaf hann í 3,5 tíma í dag.
Það gengur bara vonum framar að hafa unglinga búandi í húsinu, enda er Ólöf Inger að verða betri í að tjá sig, þó hún eigi nú langt í land áður en það verður talist eðlileg mannleg samskipti frá hennar hálfu.
Neikvæðnin er alveg að fara með mig og þarf eitthvað drastískt að gerast svo lífið verði ekki einn kolamoli. Hef komist að þeirri niðustöðu í dag að vandamálið sé að mig vanti áskorun í lífinu, ekki það að lífið sé ekki fullt af áskorunum. Mig vantar eitthvað til að byggja sjálfa mig upp í leiðinni, t.d. einhverja íþrótt svo ég geti fundið framför hjá sjálfri mér. Er orðin svo desperate að ég er farin að íhuga að stunda yoga. Verst að yoga snýst um að forðast endurholdgun. Hm...held ég fari bara í pilates í staðinn. Mig vantar nefnilega að stunda íþrótt sem leggur áherslu á teygjur, því ég þarf hvort eð er að gera fullt af teygjum á hverjum degi til að forðast eftir-fæðingar-grindargliðnun og önnur mjaðmavesen. Þetta er því miður allt eins og hvert annað námskeið þar sem maður þarf að skrá sig og kennt er einu sinni í viku. Lélegt! En...(jákvæða hliðin:) það er þó alla vega kennt yfir höfuð:) Annars er sigurinn bráðum í höfn. 31 kíló farin :) 6 eftir. Mjög magnað þar sem ég borða nammi frekar oft í viku. Hugsa sér hvað ég gæti náð fljótum árangri ef ég myndi bara sleppa því að japla þetta endalausa sykurdrasl. En, súkkulaði er bara unaður lífsins og erfitt að láta vera. MMmm...súkkulaði.
Missti eitt barn í viðbót, þannig að nú eru þeir bara 2 aftur. Mamman fékk vinnu sem gerir henni kleift að hafa barnið sitt heima. Enda á hún 5 börn og því ódýrari og betri kostur á allan hátt fyrir fjölskylduna og barnið. Hún á samt eftir að koma í heimsókn við og við. Verst fyrir mig þar sem þetta var alveg pollrólegt og yndislegt barn. Fæ örugglega ekki ný börn fyrr en eftir sumarfríið. Spennandi að sjá hvað gerist. Þetta er bara í Guðs hendi, það er greinilegt. Ég á samt met í að missa börn hér í damömmuvinnunni...

2 Comments:
VÁ 31 kíló á einu ári það er GEÐVEIKT. 2,5kíló á mánuði...váts. Pilates gott, systir mín var að kaupa sér dvd disk með svoleiðis og segir að það taki alveg vel á.
ÁFRAM ÞÚ
Kv.Heiðdís
Vá....til hamingju...31 kíló....það verður nú að kallast MJÖG gott. Mátt nú alveg vera vel stolt af þér með það!
En ég á einmitt svona Pilates dvd-disk og hann er æði. Mæli eindregið með því. Elska líka að það sé hægt að kaupa svona disk því þá getur maður bara gert þetta heima í stofu þegar manni hentar! :)
Go you!
Kv. Tinna Rós
Post a Comment
<< Home