Tiltekt
Ég er að reyna að mana mig upp í að taka alveg rækilega til hér á heimilinu. Það er einhvern veginn ekkert á réttum stað og allar hillur í algjöru rugli. Það vantar skápa og fleiri hillur til að geta falið þetta dót einhvers staðar sem er hér út um allt. Svo þarf að þrífa ofninn og alla eldhússkápa og allt þarf að gerast fyrir næstu viku þegar tengdó koma. Það er nú ekki hægt að láta fólk sjá hversu óskipulagður maður er í raun... Jahér!!! Hvað er eiginlega að gerast með mann!
Ég fékk eiginlega auka fríviku þessa vikuna þar sem hitt barnið sem ég er að passa fór í frí. Ég er náttúrlega alltaf á bakvakt fyrir gestabörn, en fólk virðist ekki vera veikt svona rétt fyrir sumarfríið. Hm... skrýtið! Það bætast nú samt tvær 10mnð gamlar stelpur í strákahópinn minn eftir fríið, svo þá er nú letilífið úr sögunni í bili. Þetta hefur nú verið meira en lítið sérstakt hvað ég hef haft lítið að gera miðað við dagmömmur almennt. Svo tala þau um hvað það er mikil vöntun á dagmömmum! Ekki hef ég nú fundið fyrir því. Þau hafa alla vega ekki nýtt mig eins og þau hefðu getað gert. Ég kvarta náttúrlega ekkert yfir því :)
Við erum hugsanlega alveg að fara að festa kaup á bíl, sem er alveg dásamlegt þar sem við höfum verið bíllaus í marga mánuði og það er ekkert smá þreytandi og leiðinlegt. Þegar ég er alveg að springa úr leiðindum hér heima fer ég náttúrlega bara í strætó niðrí bæ, en það er aðeins flóknara að ætla að taka strætó á aðra staði. Það er t.d. bær 4km héðan þar sem við verslum oft í matinn, en strætóferð þangað tekur ca. 1,5 klst, svo maður er nú ekki að fara að gera það með óþolinmótt barn með sér. Þannig að: strætóskipulagið er nú ekki mikið betra hér en heima! Alla vega ekki svona útá landi. Sem betur fer er kaupmaður með búð hér í 5 mín göngufjarlægð héðan. Við hefðum nú verið í vondum málum án hans.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home