Sunday, August 31, 2008

Pakki pakk!!



Jæja, þá er síða gullmolans komin í lag aftur. Á samt eftir að setja inn nýjar myndir. Gef ykkur smá forskot á sæluna hér.

Annars er ég alveg hrikalega dugleg. Ég er nefnilega byrjuð að pakka þó það sé sennilega um 3 mánuðir í brottför héðan. 4 stórir kassar eru tilbúnir. Er að endurskipuleggja allt sem var farið upp á loft svo það sé aðgengilegra upp á future reference :) Go Ólöf!!

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Bara að kvitta. Fylgist alltaf með... svona reglulega eða óreglulega, fer alveg eftir aðstæðum :)
Þú ert dugleg að endurpakka. ÉG hefði sko þurft að gera það áður en ég flutti í Hraunbæinn á sínum tíma því ég var með hátt í 20 kassa af allskonar dóti sem ég hafði safnað saman í gegnum tíðina og skellt inní geymslu hjá Mömmu og "gleymt" þar og ætlaði ekkert að opna þá fyrr en ég væri flutt!! ...og svo fór að þetta var svo mikið að Jóhanni blöskraði alveg og hjálpaði mér að fara í gegnum dótið (þegar hann var búin að bera kassana upp, færa þá til 2 eða 3x upppi, bera þá niður og bera þá aftur upp, allt á ca ári) og hann henti örugglega innihaldinu úr svona 15-17 kössum af þessum 19-20 sem ég átti!!! ...Sá hefði aldeilis getað sparað sér vinnuna ef ég hefði verið dugleg eins og þú ert núna!!
En jæja... búið og gert og núna á ég bara "smá drasl" í staðin fyrir "heilan haug" af drasli ;)
Hafið það gott. Kv. Jóhanna og grísirnir 2 og hálfur !!

04 September, 2008 03:15  
Anonymous Anonymous said...

Ha???!! Ertu ólétt aftur? Þú þarft greinilega að senda mér meil!! Og ég á bara eitt barn ennþá.

Mikið er gaman að fá svona langt komment! Ég verð nú bara að segja það. Mér finnst ég vera mjög merkileg :)

Elskan, maður lærir af reynslunni. Við fluttum líka svona þrisvar á síðasta ári og þar af pakkaði og flutti Kiddi flestu tvö síðustu skiptin og það fær hann ekki að gera aftur. Jú, hann má alveg flytja einn ;), en ekki að pakka, því hann hendir ekki bara draslinu heldur líka mjög fínum hlutum og ég er sko ekki alveg að fíla það!

Ólöf Inger.

04 September, 2008 04:18  
Anonymous Anonymous said...

Vildi bara aðeins taka þátt í umræðunni:o) Flott hjá þér Ólöf að byrja að pakka!!! Þú minnir mig á móður vora...:o) einhvers staðar frá hljóta skipulagshæfileikarnir að koma. Ég vildi stundum að ég gæti verið aðeins skipulagðari... hef samt fengið einhvern kommon sense skammt af því líka ;o) Hlakka til að sjá nýjar myndir af snúllubossanum:o):o)

06 September, 2008 10:04  

Post a Comment

<< Home