Þá er sumarfríinu lokið
4. ág.
Þá er maður búinn að vera með gesti síðan 9. júní sl. Mamma og pabbi fóru áfram til Spánar í dag og tengdaforeldrarnir ásamt syni og vini fara 7. ágúst. Við höfum verið að gerða ýmislegt, m.a. fórum við í sumarbústað í viku með foreldrum mínum á norð-vestur Jótlandi. Svo fórum við í sumarland ásamt fjölskyldu Kidda þar sem við hittum fleiri ættingja hans og gistum hjá móðursystur hans og fjölskyldu hennar. Ferðirnar voru báðar mjög vel heppnaðar og gott að komast aðeins úr sama gamla umhverfinu hér. Það var sól og blíða og allt upp í 30 gráður.
Vinnan hófst aftur með látum kl. 8 í morgun, en ég var með fund með foreldrum 2 nýrra barna sem ég mun passa.
8. ág.
Jæja, þá fer þessari vinnuviku senn að ljúka og Guði sé lof og dýrð fyrir það. :) Það má segja að þetta hafi verið ein brjálaðasta vikan í mínu lífi og þá er nú mikið sagt. Vandinn við að passa 4 lítil kríli (sem btw ekki þekkjast nægilega vel innbyrðis) er að maður getur ekki flýtt sér of mikið þegar mikið liggur á. Svo þyrfti maður helsta að geta haldið á þeim öllum í einu, sem er ekki alveg að ganga. Nú svo er líka frekar erfitt að skipta á einum sem hefur kúkað upp á bak, og halda honum niðri í leiðinni aþa hann er að reyna að gera fimleikaæfingar á meðan. Hin krílin reyna eins og þau geta að toga niður buxurnar á manni á meðan af því að þeim langar til að ég haldi á þeim. Svo er misjafnt hvernig frústrasjónin (svona er íslenskan góð hjá manni þessa dagana) kemur út hjá börnunum. Sum vilja ekki borða og önnur gráta, en sonur minn!! Hann fer aðrar leiðir. Hann lemur bara hina krakkana og bítur þá síðan. Jahér!!! Svona er nú litla englabarnið mitt eftir allt saman. Hann gerir þetta samt bara þegar hann er búinn að fá alveg nóg. Þess á milli er hann nú eins og ljós.
Þá hafið þið það. Þetta var svona til að gefa ykkur smá keim af mínum vinnudegi. Annars fóru síðustu gestirnir í gær, þannig að nú hlakka ég til að geta sest fyrir framan sjónvarpið um helgina og slappað af!!
Hvað er svo að frétta af ykkur?!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home