Allt á fullu
Húsið okkar er nú formlega komið á sölu og hægt að kíkja á það hér: (ég kann greinilega ekki að búa til link)
http://www.etgodthjem.dk/00043/?url=http://etgodthjem.husavisen.dk/boligresultat.asp?Vej=Tranevej%2024&PT=8721&SOEG=S%D8G&S=Postnr,Boligtype%20DESC,kontantpris%20DESC&
Við Kiddi tókum sjálf myndirnar til að lækka kostnaðinn við söluna. Upplausnin virðist nú vera heldur léleg og ekki veit ég af hverju það er. Held þau hafi eitthvað verið að fikta við þær til að þetta myndi passa inn á heimasíðuna.
Ég er ekki enn búin að segja upp, þar sem að ég komst að því að ég þarf bara að segja upp með mánaðar fyrirvara. Hins vegar ætla ég að tala við yfirmann minn samt þar sem við erum jú búin að setja atvinnuhúsnæðið mitt til sölu :) og það væri kannski ágætt fyrir þau að vita að því.
Það gengur aðeins betur með börnin núna og ég fór út með þau í heimsókn til annarrar dagmömmu í dag. Það gekk bara betur en ég hefði vonað og bendir það líka til þess hversu miklum framförum þau hafa tekið. Ég get samt ekki beðið eftir að losna undan þessari vinnu, þó það þýði að ég þurfi að senda Gunnar Jakob í pössun. Þá fær hann alla vega óskerta athygli frá mömmu sinni þegar við erum saman. Við ætlum að leita að ódýrri og lítilli íbúð á Kaupmannahafnarsvæðinu til að ég þurfi ekki að vinna fulla vinnu. Það eru nú takmörk fyrir því hvað maður getur verið mikið frá barninu sínu.
Við komum sennilega heim um jólin, en það er ekki alveg víst hvenær. Þetta veltur allt á því hvenær og hvort við náum að selja húsið. Ég og Göns stefnum á að koma alveg í byrjun desember. Vonandi tekst það.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home