Friday, October 31, 2008

Þakklæti

Ég er þakklát. Guð gefur manni alltaf val um hvað maður vill gera. Hann blessar mann ef maður leggur áformin í hans hendur. Svo einfalt er það.

Kiddi er búinn að fá þá vinnu sem við höfðum vonast eftir því að hann fengi. Það voru einungis 250 aðrir sem sóttu um!! Það er sko ekki auðvelt að fá vinnu þessa dagana og er hann búinn að vera í afleysingum hér og þar. Á einum staðnum vildu þeir fá hann fast, enda er hann hörkuduglegur starfskraftur og afkastameiri en þeir sem höfðu unnið þarna í tugi ára, en sú vinna er alltaf frá 13:30-21:30 (sem er ekki mjög fjölskylduvænn tími og eins gott að ég vinn heima) og borgar mun minna en hin. Það kom líka í ljós í lokaviðtalinu í dag að hún borgaði meira en við héldum.

Á þessum erfiðu tímum getur maður ekki annað en verið rosalega þakklátur fyrir þetta. Við erum nú búin að lenda í ýmsu hér út af kreppunni, skattinum og undarlegri bankaþjónustu og ekki hefur það hjálpað að vera Íslendingur. Bankinn okkar hefur beinlínis lagt okkur í einelti fyrir að vera Íslendingar og lokað á alla aðstoð. Gaman! Þá er nú gott að eiga góða að.

Erfiðasta tímabilið í vinnunni minni er lokið og allt á uppleið. Nú er ég bara mjög ánægð og nýt þess. Börnin koma brosandi til mín og samstarfskonurnar eru frábærar, þó yfirmenn mínir séu ekki alveg eins og maður vill hafa þá. En, síðan hvenær var allt fullkomið á vinnustaðnum, ég bara spyr.

Nú hlakka ég bara til helgarinnar og við ætlum sko að halda upp á bænasvör og bjartari framtíð. Það verður sko bökuð kaka hér á heimilinu :) Nohh!

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

hey frábært að frétta. gaman að lesa svona jákvæðar og gleðilegar færslur. hamingjuóskir til mannsins já og bara til ykkar fyrir að vera til ! :)

Kv. að austan, Heiðdís

01 November, 2008 17:06  
Anonymous Anonymous said...

Gaman að heyra þegar vel gengur ;)
Vona að kakan smakkist vel ;)
Kom annars hingað í þeim eina tilgangi að finna netfangið þitt svo ég geti sent þér maili-ð!! ...á eftir að leita betur að því á síðunni!!
(er nefnilega bara með gömlu tölvuna tengda og netfangið þitt er í nýju tölvunni og ég kemst ekki í hana eins og er... smá klúður en afsakar samt ekkert letina !!)
Kv. Jóhanna

02 November, 2008 04:53  
Anonymous Anonymous said...

Heyrðu...
Fann ekkert netfang hér, en fann eitt netfang á þig í Hotmailinu mínu. Sendi bréfið þangað (olofinger@gmail.com) þannig að ef þú ert ekki að nota það þá þarftu að senda mér nýtt netfang ;)
(er að nota johannaks@talnet.is núna!)
OKi ??
Kv. Jóhanna

02 November, 2008 05:22  
Blogger Ólöf Inger said...

Það er einmitt netfangið mitt :)

02 November, 2008 05:35  

Post a Comment

<< Home