Tuesday, September 23, 2008

Fleiri myndir


Þá eru komnar enn fleiri myndir inn á barnalandssíðuna.



Við fjölskyldan vorum á Himmerlandsgården um helgina og nutum þess að vera saman og með vinum. Þar var líka mjög góður kennari frá Newbold skólanum í Bretlandi. Hann hvatti okkur m.a. til að gleðjast og njóta lífsins til að við hefðum forsendur til að ná til samtímans, því samtíminn spyr alltaf hvað maður fær út úr hlutunum. Þetta var í kennslu undir yfirskriftinni "Party Theology". Áherslan var á að mæta fólki þar sem það er, en ekki búast við því og bíða eftir að það komi til okkar. Jesús fór í veislur með tollheimtumönnum, sem þótti óheyrt af rabbí. Við eigum að vera í heiminum þótt við séum ekki hluti af honum. Dáltið öðruvísi en meðal kennslan.

Við kynntumst líka konu frá Tansaníu sem er gift dana. Rosa gaman. Við erum formlega boðin í heimsókn til þeirra í Arusha :) (sem er borg í Tansaníu) Þau eiga eitthvað risa hús með risa stofu og fullt af herbergjum og baðherbergjum... Það væri spennandi að kynnast Afríku á öðruvísi hátt...algjörlega öfugan hátt miðað við hingað til. Þau eru nefnilega frekar efnuð miðað við þá Afríkana sem ég hef kynnst plús að við fengjum að búa hjá alvöru Afríkana. Þau eiga m.a. hlut í fyrirtæki sem sér um lúxusferðir til Serengeti þjóðgarðsins, þannig að maður gæti líka fengið ýmis tip frá þeim ef maður vildi fara þangað. Er sko alveg til í það. Hef persónulega bara upplifað að vera fátæk í Afríku, þó svo við vorum ríkari enn flestir innlendir.

Nú er fólk aðeins byrjað að óska eftir fleiri upplýsingum um húsið okkar, þannig að við vonum að það seljist fyrir 1. des. Ég á miða heim þann 5. des, þannig að nú er bara að bíða og sjá hvort það gangi upp.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home