Saturday, September 13, 2008

Myndir

Það eru komnar nýjar myndir á barnalandið :) Njótið vel þið sem hafið áhuga á því.

Í gær söng ég í fyrsta skiptið í kirkjunni okkar hér. Það gekk bara vel þó ég hafi verið mjög stressuð. Það er nefnilega mjög langt síðan ég kom fram síðast, eða sl. jól. Fólkið í kirkjunni var allt mjög hissa á þessu, því flestir vissu ekki að ég kynni að syngja. Ég á mjög erfitt með að bjóða mig fram í svoleiðis hluti, en þrátt fyrir það gerði ég það svona hálf partinn þetta skiptið. Svona er nú það. Stundum tekur maður smá framförum í lífinu. Nú er ég ss farin að æfa reglulega með einum organistanum í Aðventkirkjunni, en hann er mjög skemmtileg týpa á aldri við foreldra mína sem er til í að spila alls konar tónlist, þó ég muni nú einbeita mér að klassískari verkum. Ef við værum ekki að stefna að flutningum til Kaupmannahafnar og heimferð um jólin, þá hefði ég viljað æfa upp tónleikaprógram með honum, en...Af hverju þarf lífið að vera svona flókið stundum?!

VIð vorum líka með húsið fullt af fólki í hádegismat í gær, en mæðrahópurinn + nokkrir eiginmenn komu í heimsókn. Þetta var mjög gaman og er ein okkar orðin ólétt aftur (ég er ekki þessi eina :) ). Spennandi!

Hafið það sem best.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home