Nú bíð ég bara...
Ég er að verða vitlaus!! Sum börn vilja bara aldrei hætta að gráta. Hinar dagmæðurnar finnast þær vera að kvarta út af engu þegar þær heyra í einu barninu mínu sem hreinlega öskrar þegar hann grætur, og hann grætur sko oft yfir daginn yfir hinu minnsta. Eg get í alvörunni ekki beðið eftir að losna úr þessari vinnu. Það verður nú ekki gaman að setja mitt eigið barn í pössun, en hann fær á alla vega ánægðari mömmu, það er nokkuð ljóst. Mig dreymir núna mest um að fá vinnu þar sem ég er bara ein og þarf ekki að hugsa um annað fólk...! Ætli ég sé ekki bara búinn með minn skammt af þessu í bili.
Nú fer að styttast í næstu helgi, en þá förum við á fjölskyldumót og ég hlakka alveg rosalega til. Þá fáum við að eyða tímanum saman fjölskyldan og líka með vinafólki okkar. Við þurfum hvorki að elda né að þrífa, þannig að þetta verður bara í alla staði frábært. Fyrir utan náttúrlega að við fáum aðeins að byggja okkur upp andlega, sem veitir nú ekki af. Mér hefur fundist ég þurfa að kynnast Guði á alveg nýjan hátt undanfarin ár, sem hefur verið erfitt þar sem ég hef hvorki haft mikinn tíma fyrir sjálfa mig né mikla einbeitingu þegar tími hefur gefist. Nú er ég hins vegar hægt og slitrótt að lesa bók sem heitir "The Jesus I never knew" eftir Philip Yancey og það sem ég hef lesið hefur verið upplyftandi. Hann er greinilega mikill efasemdamaður sjálfur og höfðar einhvern veginn bara mjög mikið til mín.
Það verður opið hús fyrir fólk að skoða heimilið okkar næsta föstudag, þannig að nú vonum við bara að eitthvað fari að gerast í sölumálunum bráðum.

2 Comments:
Heyrðu...ég las einmitt þessa bók fyrir ekki alllöngu síðan. Ekki oft sem ég næ að einbeita mér 100% að lestri í frítíma mínum, en mér fannst þessi æði! :)
Alltaf gaman að fylgjast með ykkur familíunni í DK-landi...ótrúlegt hvað Gunnar Jakob stækkar hratt!!
Kv. Tinna Rós
Vá hvað ég skil þig með grenjandi krakka - er að díla við einn þannig í vinnunni minni og shit hvað hann getur drepið mig.
Post a Comment
<< Home